Til lukku með daginn Helga

Mér sem sagt tókst að klára skólann á miðvikudaginn og fór beinustu leið austur í bústað. Lá þar í leti alla helgina, lét mig reyndar hafa það að fara á dýrindis tónleika með Þröstunum í Skálholti á fimmtudaginn... og sá ekkert eftir því. Annars lá ég bara með allar tær upp í loft og át og drakk kaffi annað hvort í Hosiló eða Ásakoti.
Ég byrjaði svo að vinna á Skógarborg í gær. Var gjörsamlega búin eftir daginn! Það tók heldur betur á að þurfa að klæða sig (geta ekki verið á heimafötunum fram eftir degi), standa í lappirnar meira eða minna allan daginn og hreyfa fleiri líkamsparta en augu og fingur. Varð að leggja mig í klukkutíma eftir vinnuna til þess að hafa það af í saumó um kvöldið! Hefði þótt slæmt að missa af saumó þar sem Sigga Kolla var mætt alla leiðina frá Ítalíu.
Eftir vinnu í dag fór ég í afmælispartý til Helgu, gúffaði í mig allskonar gúmmelaði og át á mig gat eins og vill gerast í svona veislum.
Á morgun er ekkert planað eftir vinnu. Það verður bara frí og ég er að hugsa um að horfa á sjónvarpið bara! Því á fimmtudaginn er planið að fara út að borða, partý á föstudaginn, kannski fara í sumarbústaðinn á laugardaginn og líklega kaffi til Siggu Kollu á sunnudaginn. Þannig að mér ætti ekkert að leiðast þó ég þurfi ekki að sitja við tölvuna öll kvöld.
Gott í bili.
Dóra - búin með skólann!